About us
Visit.is er öflugt ferðatengt upplýsinga hlið að Íslandi (Gateway to Iceland) þar sem hægt verður að finna á auðveldan hátt fjölmargar upplýsingar um fyrirtæki í ferðaþjónustu á Íslandi í mismunandi flokkum, samanber afþreying, gisting, ferðamáti o.s.frv. Til að ná markmiði þessu bjóðum við aðilum í ferðaþjónustu að skrá fyrirtæki sitt endurgjaldslaust í viðeigandi flokk ásamt einni mynd. Undanfarin þrjú ár hefur Visit.is verið að fá yfir 1000 heimsóknir á mánuði, þótt ekkert innihald hafi verið á síðunni. Teljum við þetta vera stórt tækifæri til frekari kynningar á íslenskri ferðaþjónustu og munum við ýta undir þessa athygli með víðtækri markaðssetningu í öðrum vefmiðlum sem verður fjármögnuð með sölu á auglýsinga á síðunni sjálfri.





