Nýr vefmiðill – Visit.is
Okkur er sönn ánægja að kynna til leiks nýjan vefmiðil á sviði ferðaþjónustu, Visit.is
Í ljósi núverandi aðstæðna í ferðamálaiðnaðinum ákváðum við að leggja okkar að mörkum til að efla kynningu á landi og þjóð á erlendri grundu og ýta Visit.is úr vör. Við höfum þá hugsjón að leiðarljósi að geta boðið upp á hlutlausan vefmiðil þar sem skráningar eru án endurgjalds.
Visit.is er ætlað að vera öflugt ferðatengt upplýsinga hlið að Íslandi (Gateway to Iceland) þar sem hægt verður að finna á auðveldan hátt fjölmargar upplýsingar um fyrirtæki í ferðaþjónustu á Íslandi í mismunandi flokkum, samanber afþreying, gisting, ferðamáti o.s.frv. Til að ná markmiði þessu bjóðum við ykkur að skrá fyrirtæki ykkar HÉR endurgjaldslaust í viðeigandi flokk ásamt einni mynd. Undanfarin þrjú ár hefur Visit.is verið að fá yfir 1000 heimsóknir á mánuði, þótt ekkert innihald hafi verið á síðunni. Teljum við þetta vera stórt tækifæri til frekari kynningar á íslenskri ferðaþjónustu og munum við ýta undir þessa athygli með víðtækri markaðssetningu í öðrum vefmiðlum sem verður fjármögnuð með sölu á auglýsinga á síðunni sjálfri.
Þar sem vefsíðan er nýtilkomin í loftið er hún heldur innihalds lítil, en með þinni hjálp tekst okkur að efla hana og verður hún í stöðugri framþróun ásamt því að margar fjölbreyttar nýungar munu líta dagsins ljós á komandi misserum.
Við hvetjum ykkur eindregið til að skoða vefsíðuna og leggja ykkar lóð á vogarskálarnar með því að skrá fyrirtæki ykkar á visit.is, án endurgjalds.